Gæða- og umhverfisstefna

P.A. hreinsun býður fjölbreyttar heildarlausnir í ræstingum og hreingerningamálum fyrir fyrirtæki og stofnanir í Reykjanesbæ.

Gæðastefna

Þekking, reynsla og góð mannleg samskipti eru alltaf höfð í fyrirrúmi.

Áratuga reynsla

Starfsfólk P.A. hreinsunar hefur áratuga langa reynslu af ræstingum.

Vönduð vinnubrögð

Lögð er mikil áhersla á vönduð vinnubrögð, heiðarleika og persónuleg samskipti við verkkaupa.

Sniðið að hverju fyrirtæki

Dagleg, vikuleg eða mánaðarleg þrif, allt eftir samkomulagi. Unnið er eftir sérstöku þjónustukerfi fyrir fyrirtækjaumhverfi.

Þjónusta við fyrirtæki og stofnanir felst meðal annars í hreingerningum, teppahreinsun, steinteppahreinsun, gluggahreinsun, gluggaþvotti, rimlagardínuhreinsun, bónhreinsun, bónun gólfa og parkethreinsun.

P.A. hreinsun býður fyrirtækjum upp á einstaka og fagmannlega þjónustu sem hentar bæði stórum og smáum fyrirtækjum, og við sjáum til þess að fyrirtækið þitt sé ávallt hreint.

Umhverfisstefna

  1. Að öll starfsemi fyrirtækisins sé í sátt við umhverfið og mannfólkið.
  2. Að viðskiptavinir P.A. hreinsunar geti treyst því að fyrirtækið sýni gott fordæmi og uppfylli viðeigandi kröfur vegna umhverfismála.
  3. Að hafa samvinnu við viðskiptavini um að lágmarka áhrif hreinlætisvara á umhverfið með því að tryggja rétta skömmtun og notkun þeirra, m.a. með sérhæfðum skömmtunardælum fyrir hreinsi- og sótthreinsiefni.
  4. Að fræða starfsfólk fyrirtækja og stofnana um rétt vinnubrögð: að lágmarka efnisnotkun, plastpokanotkun, orkunotkun og slysahættu.
  5. Að vinna stöðugt að umbótum á sviði umhverfismála og mengunarvarna og fara að gildandi lögum og reglum um þá málaflokka.