Við þrífum allt.
Vönduð vinnubrögð á góðu verði.
Við bjóðum upp á heildarlausnir í þrifum með gæða hreinsiefnum, öflugan sérhæfðan tækjakost og reynslumikið starfsfólk.

Mynd: gólfbónun í stigagangi
Hvað viltu láta þrífa?
Við tökum að okkur hreingerningar á skrifstofu- og iðnaðarhúsnæði, flutningaþrif, gluggaþvott, teppa- og mottuhreinsun, húsgagnahreinsun, bónleysingu, bónun og viðhaldspússningu.
Öll almenn hreingerningaþjónusta – fyrir heimili, húsfélög, fyrirtæki og stofnanir.

Ræstingar og hreingerningar
Hreingerningar á skrifstofu- og iðnaðarhúsnæði og daglegar ræstingar.
Nánar
Teppahreinsun
Vönduð teppahreinsun og djúphreinsun – líka stólar og sófar.
Nánar
Mottuhreinsun
Djúphreinsun, skilvinda og blásari sem þurrka motturnar fljótt og vel.
Nánar
Húsfélagaþjónusta
Heildarumsjón á ræstingu fyrir húsfélög.
Nánar
Gólfbónun
Bónun og viðhald margskonar gólfefna fyrir fyrirtæki og stofnanir.
Nánar
Flutningaþrif
Við þrífum gömlu íbúðina eftir að þú hefur flutt í þá nýju.
Nánar
Gluggaþvottur
Hluti af reglulegum ræstingum – eða sjálfstætt verkefni.
Nánar
Sorptunnuþrif
Þrif, sótthreinsun og lyktareyðing á sorpgeymslum og tunnum.
NánarÖflugur, sérhæfður tækjakostur
Motturnar eru djúphreinsaðar, undnar í skilvindu og þurrkaðar með blásara. Sorptunnurnar þrífum við í sérsmíðaðri kerru.

Djúphreinsunartækni sem nær óhreinindunum úr mottunum.

Mottusnúningsvél sem vindur vatnið úr mottunum.

Þurrkar motturnar fljótt og vel – kemur í veg fyrir myglu og ólykt.

Motturnar hanga til þerris áður en þeim er skilað.
Heitt vatn og safntankur – óhreinindin fara ekki á bílaplanið.
Lítið fyrirtæki með áratuga reynslu
„Ánægður starfsmaður skilar mun betra verki og er andlit fyrirtækisins út á við.“
P.A. hreinsun er lítið fyrirtæki í Reykjanesbæ og við höfum kappkostað að eiga góð samskipti við verkkaupa og aðra sem að málum koma. Meirihluti starfsfólks okkar hefur unnið við ræstingarþjónustu til fjölda ára og það eru gæði þjónustunnar.
Vönduð og traust vinnubrögð eru aðalsmerki okkar, sem og persónulegt samband við viðskiptavini.
Um okkurÍ sátt við umhverfið og mannfólkið
Við vinnum með viðskiptavinum að því að lágmarka áhrif hreinlætisvara á umhverfið, meðal annars með sérhæfðum skömmtunardælum sem tryggja rétta skömmtun hreinsi- og sótthreinsiefna.
Gæða- og umhverfisstefna
